‏ Psalms 120

1Ég ákalla Drottin í nauðum mínum, og hann bænheyrir mig. 2Drottinn, frelsa sál mína frá ljúgandi vörum, frá tælandi tungu. 3Hversu mun fara fyrir þér nú og síðar, þú tælandi tunga? 4Örvar harðstjórans eru hvesstar með glóandi viðarkolum. 5Vei mér, að ég dvel hjá Mesek, bý hjá tjöldum Kedars. 6Nógu lengi hefir sál mín búið hjá þeim er friðinn hata. 7Þótt ég tali friðlega, vilja þeir ófrið.
Copyright information for Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.