Luke 22
1Nú fór í hönd hátíð ósýrðu brauðanna, sú er nefnist páskar. 2Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum, því að þeir voru hræddir við lýðinn. 3Þá fór Satan í Júdas, sem kallaður var Ískaríot og var í tölu þeirra tólf. 4Hann fór og ræddi við æðstu prestana og varðforingjana um það, hvernig hann skyldi framselja þeim Jesú. 5Þeir urðu glaðir við og hétu honum fé fyrir. 6Hann gekk að því og leitaði færis að framselja hann þeim, þegar fólkið væri fjarri. 7Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom, er slátra skyldi páskalambinu, 8sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: ,,Farið og búið til páskamáltíðar fyrir oss.`` 9Þeir sögðu við hann: ,,Hvar vilt þú, að við búum hana?`` 10En hann sagði við þá: ,,Þegar þið komið inn í borgina, mætir ykkur maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum inn þangað sem hann fer, 11og segið við húsráðandann: ,Meistarinn spyr þig: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?` 12Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum. Hafið þar viðbúnað.`` 13Þeir fóru og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar. 14Og er stundin var komin, gekk hann til borðs og postularnir með honum. 15Og hann sagði við þá: ,,Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður, áður en ég líð. 16Því ég segi yður: Eigi mun ég framar neyta hennar, fyrr en hún fullkomnast í Guðs ríki.`` 17Þá tók hann kaleik, gjörði þakkir og sagði: ,,Takið þetta og skiptið með yður. 18Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur.`` 19Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: ,,Þetta er líkami minn, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu.`` 20Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: ,,Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt. 21En sjá, hönd þess, er mig svíkur, er á borðinu hjá mér. 22Mannssonurinn fer að sönnu þá leið, sem ákveðin er, en vei þeim manni, sem því veldur, að hann verður framseldur.`` 23Og þeir tóku að spyrjast á um það, hver þeirra mundi verða til þess að gjöra þetta. 24Og þeir fóru að metast um, hver þeirra væri talinn mestur. 25En Jesús sagði við þá: ,,Konungar þjóða drottna yfir þeim og valdhafar þeirra kallast velgjörðamenn. 26En eigi sé yður svo farið, heldur sé hinn mesti yðar á meðal sem væri hann yngstur og foringinn sem þjónn. 27Því hvort er sá meiri, sem situr til borðs, eða hinn, sem þjónar? Er það ekki sá sem situr til borðs? Samt er ég meðal yðar eins og þjónninn. 28En þér eruð þeir sem hafið verið stöðugir með mér í freistingum mínum. 29Og yður fæ ég ríki í hendur, eins og faðir minn hefur fengið mér, 30að þér megið eta og drekka við borð mitt í ríki mínu, sitja í hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. 31Símon, Símon, Satan krafðist yðar að sælda yður eins og hveiti. 32En ég hef beðið fyrir þér, að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við.`` 33En Símon sagði við hann: ,,Herra, reiðubúinn er ég að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.`` 34Jesús mælti: ,,Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag, munt þú þrisvar hafa neitað því, að þú þekkir mig.`` 35Og hann sagði við þá: ,,Þegar ég sendi yður út án pyngju og mals og skólausa, brast yður þá nokkuð?`` Þeir svöruðu: ,,Nei, ekkert.`` 36Þá sagði hann við þá: ,,En nú skal sá, er pyngju hefur, taka hana með sér og eins sá, er mal hefur, og hinn, sem ekkert á, selji yfirhöfn sína og kaupi sverð. 37Því ég segi yður, að þessi ritning á að rætast á mér: ,með illvirkjum var hann talinn.` Og nú er að fullnast það sem um mig er ritað.`` 38En þeir sögðu: ,,Herra, hér eru tvö sverð.`` Og hann sagði við þá: ,,Það er nóg.`` 39Síðan fór hann út og gekk, eins og hann var vanur, til Olíufjallsins. Og lærisveinarnir fylgdu honum. 40Þegar hann kom á staðinn, sagði hann við þá: ,,Biðjið, að þér fallið ekki í freistni.`` 41Og hann vék frá þeim svo sem steinsnar, féll á kné, baðst fyrir og sagði: 42,,Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji.`` [ 43Þá birtist honum engill af himni, sem styrkti hann. 44Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir, en sveiti hans varð eins og blóðdropar, er féllu á jörðina.] 45Hann stóð upp frá bæn sinni, kom til lærisveinanna og fann þá sofandi, örmagna af hryggð. 46Og hann sagði við þá: ,,Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, að þér fallið ekki í freistni.`` 47Meðan hann var enn að tala, kom flokkur manna, og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann. 48Jesús sagði við hann: ,,Júdas, svíkur þú Mannssoninn með kossi?`` 49Þeir sem með honum voru, sáu að hverju fór og sögðu: ,,Herra, eigum vér ekki að bregða sverði?`` 50Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað. 51Þá sagði Jesús: ,,Hér skal staðar nema.`` Og hann snart eyrað og læknaði hann. 52Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana, sem komnir voru á móti honum: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja? 53Daglega var ég með yður í helgidóminum, og þér lögðuð ekki hendur á mig. En þetta er yðar tími og máttur myrkranna.`` 54En þeir tóku hann höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar. 55Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann, og Pétur settist meðal þeirra. 56En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: ,,Þessi maður var líka með honum.`` 57Því neitaði hann og sagði: ,,Kona, ég þekki hann ekki.`` 58Litlu síðar sá hann annar maður og sagði: ,,Þú ert líka einn af þeim.`` En Pétur svaraði: ,,Nei, maður minn, það er ég ekki.`` 59Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: ,,Víst var þessi líka með honum, enda Galíleumaður.`` 60Pétur mælti: ,,Ekki skil ég, hvað þú átt við, maður.`` Og jafnskjótt sem hann sagði þetta, gól hani. 61Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins, er hann mælti við hann: ,,Áður en hani galar í dag, muntu þrisvar afneita mér.`` 62Og hann gekk út og grét beisklega. 63En þeir menn, sem gættu Jesú, hæddu hann og börðu, 64huldu andlit hans og sögðu: ,,Spáðu nú, hver það var, sem sló þig?`` 65Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann. 66Þegar dagur rann, kom öldungaráð lýðsins saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og létu færa hann fyrir ráðsfund sinn. 67Þeir sögðu: ,,Ef þú ert Kristur, þá seg oss það.`` En hann sagði við þá: ,,Þótt ég segi yður það, munuð þér ekki trúa, 68og ef ég spyr yður, svarið þér ekki. 69En upp frá þessu mun Mannssonurinn sitja til hægri handar Guðs kraftar.`` 70Þá spurðu þeir allir: ,,Ert þú þá sonur Guðs?`` Og hann sagði við þá: ,,Þér segið, að ég sé sá.`` 71En þeir sögðu: ,,Hvað þurfum vér nú framar vitnis við? Vér höfum sjálfir heyrt það af munni hans.``
Copyright information for
Icelandic
The selected Bible will not be clickable as it does not support the Vocabulary feature. The vocabulary is available by hovering over the verse number.
Welcome to STEP Bible
A simplified search is now available!Here are the frequently asked questions:
How do I read passages in Bibles?
- How do I look up a passage?
- How do I see three Bibles at once?
- How do I find a parallel gospel passage?
- How do I follow a Bible reading plan?
- How do I also see a commentary?
1) Click the Resource icon.
2) Click the resource for parallel gospel passage
2) Click the resource for parallel gospel passage
1) Click the Resource icon.
2) Plans for 1/2/3 years, chronological, Jewish etc
2) Plans for 1/2/3 years, chronological, Jewish etc
1) Click the Bible button.
2) Click on Commentaries
2) Click on Commentaries
How do I find words and phrases?
- How do I find words or topics?
- How do I search only some books in the Bible?
- How do I find a Greek or Hebrew word?
- How do I find a word only where it relates to a topic?
- How do I find more about search?
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on Range
3) Select the books that you wish to search
1) Click on the search button
2) Click on Range
3) Select the books that you wish to search
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on the Hebrew or Greek tab
3) Type in the Greek/Hebrew word in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) View corresponding row to see Greek/Hebrew translation of the word
1) Click on the search button
2) Click on the Hebrew or Greek tab
3) Type in the Greek/Hebrew word in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) View corresponding row to see Greek/Hebrew translation of the word
Video guide
1) Click on the search button
2) Click on the English tab
3) Type in the topic in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) Click on one of the words or topics listed
1) Click on the search button
2) Click on the English tab
3) Type in the topic in the search box, press Return, and wait for the table to fill itself.
4) Click on one of the words or topics listed
How do I do a word study?
- What information can I find about a word?
- Meaning: how the word is used throughout the Bible
- Dictionary: academic details about the word
- Related words: similar in meaning or origin
- Grammar: (only available for some Bibles)
- Why do only some Bibles have clickable words?
- What does “~20x” or “Frequency” mean?
- Why do some words have dropdown next to the frequency number?
- Where do I find the maps?
- How do I get the word frequency for a chapter or a book?
When you click on a word, the detailed lexicon opens with:
'Vocabulary' Bibles link the translation to Greek & Hebrew. So far, only some Bibles have this vocabulary feature. They are shown in the Bible select screen with the letter 'V'.
It is the number of occurrences of a word in the Bible. Click on it to see them all in the selected Bible(s).
This reveals different forms for some words and names. These details are often interesting to scholars, eg the word 'beginning' in Genesis.
Video guide
1st method:
Click on a place name then on the Map button in the detailed lexicon.
2nd method:
1) Click the Resource icon.
2) Click on "Places in the Bible"
1st method:
Click on a place name then on the Map button in the detailed lexicon.
2nd method:
1) Click the Resource icon.
2) Click on "Places in the Bible"
Video guide
1) Click on the analysis icon.
2) Click on the "Selected passage" button if no analysis is shown.
1) Click on the analysis icon.
2) Click on the "Selected passage" button if no analysis is shown.
How do I find more information on original languages?
- How do I see Greek/Hebrew vocabulary for my Bible?
- How do I see Greek/Hebrew transliteration for my Bible?
- How do I see Greek/Hebrew vocabulary for a verse?
- How can I view multiple Bibles together as an Interlinear?
- How do I see the various versions of the Greek OT?
- How do I display the color-coded grammar?
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Greek / Hebrew". Original language vocab will be shown.
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Greek / Hebrew". Original language vocab will be shown.
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Transliteration".
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the Vocab feature
3) Click on the Option button, then click "Interlinear options”, then select "Transliteration".
Video guide
1) Click on the verse number to list the words and meanings
2) Hover over or click on a word for more details about the word
1) Click on the verse number to list the words and meanings
2) Hover over or click on a word for more details about the word
Video guides
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select two Bible with the vocabulary feature
3) Click on the Option button, then click Interlinear”. Interlinear will be shown.
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select two Bible with the vocabulary feature
3) Click on the Option button, then click Interlinear”. Interlinear will be shown.
1) Click on the Bible translation button
2) Select “Ancient” for the language
3) Scroll down to see the Greek OT translations
Examples
2) Select “Ancient” for the language
3) Scroll down to see the Greek OT translations
Examples
Video guide
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the grammar feature
3) Click on "G" or "Grammar" at the navigation bar. The text will then be color coded.
Examples
1) Click on the Bible translation button
2) Refer to the legend and select the Bible translations with the grammar feature
3) Click on "G" or "Grammar" at the navigation bar. The text will then be color coded.
Examples
© STEPBible - 2024